Persónuupplýsingar sem unnið er með þegar þú hefur samskipti við Matfugl ehf. eru nýttar til þess að mæta þörfumviðskiptavinarins allt frá pöntun, vinnslu pöntunar, samskiptum við viðskiptavin og miðlunar á nauðsynlegum gögnum til viðskiptavina og þegar um lögmæta hagsmuni Matfugls ehf. er að ræða og að slík vinnsla er nauðsynleg fyrir starfsemina. Þar með talið reikningum, upplýsingum tengda pöntunum og öðrum nauðsynlegum gögnum er varða viðskiptasambandið. Þetta geta verið gögn fengin við nýskráningu, í tölvupóst samskiptum og símleiðis.
Allar persónuupplýsingar eru varðveittar á öruggan hátt og geta viðskiptavinir óskað eftir að láta eyða/fækka úr viðskiptakerfum okkar. Persónuupplýsingar eru og verða ekki seldar til þriðja aðila. Við reynum í öllum tilfellum að takmarka vinnslu og söfnun persónuupplýsinga. Viðskiptavinur á ávallt rétt á að sjá þær persónuupplýsingar sem Matfugl ehf. á um sig og í sumum tilfellum að þær séu leiðréttar eða jafnvel eytt.
Fyrirspurnum varðandi persónuverndarmál og vinnslu persónuupplýsingar skal beint á netfangið: bokhald@matfugl.is